Rýmingarsala á HCR
Heyrst hefur - laugardagur 14.maí 2011 - Guðni Hermansson - Lestrar 1337 - Athugasemdir (0)
Rýmingarsala á AC Hcr fór fram á vorslútti EyLív. Manni Sverris seldi 3 stk AC Hcr sem voru geymdir fyrir utan dyrnar á verkstæði Tryggva á meðan hófinu stóð. Að sögn Manna var kaupandinn sjeik AlíBaba frá Túrkmenístan. Söluverðið var sjötíuogfimmmilljónir túrkdollara en vegna gjaldeyrishafta verður andvirðið greitt í fjórum tonnum af gulu rúllubaggaplasti um næstu jól. Stórgróði sagði Manni í samtali við félagstíðindi.










