Sno Cross Country 1. umferð
Almennt - laugardagur 04.febrúar 2012 - Vefstjóri - Lestrar 34 - Athugasemdir (0)

Sno Cross Country 1. umferð
Skráning er hafin í fyrstu vélsleðakeppni vetrarinns. 1. umferð í Sno Cross Country 2012 fer fram þann 4. febrúar við
akstursíþróttasvæði VÍK í Bolaöldu. Fyrir þá sem ekki vita eru þetta einskonar endurokeppnir fyrir snjósleða og er
þetta tilraun snjósleðanefndar MSÍ til að sprauta lífi í keppnishald í sleðasportinu hér heima.
Keppt verður í fjórum flokkum, Meistaraflokki, B flokki, Unglingaflokki og Kvennaflokki. Það þurfa að vera 5 í flokk til að hann telji til
verðlauna. Allar vélarstærðir eru leyfðar í öllum flokkum nema að í unglingaflokki er 600cc hámark. Keyrðar eru tvær umferðir
í hverri keppni og þá seinni umferðin öfugan hring. Allir flokkar fara á sama tíma á ráslínuna en Meistaraflokkur er ræstur 1
mínútu á undan restinni. Það verður hlaupandi start 20 m fyrir aftan hverja ráslínu að sleðanum. Meistaraflokkur keyrir í 2x 75
mínútur og hinir í 2x 45 mínútur.
Brautin er miðuð við 10km til eða frá og verður stikuð og borðuð skýrt og greinilega. Við brautarlagningu er fyrirhugað að nýta
landslagið algjörlega þ.e. ekki búa til neinar þrautir, þó er það alveg frjálst eftir aðstæðum og tækjabúnað
á hverjum keppnisstað fyrir sig. Reynt verður að halda löngum beinum köflum algerlega í lágmarki til að forðast hættulegann hraða.
Aðeins má taka bensín í pitti eftir ráshliðið en í hverjum hring verður keyrt í gegnum ráshlið þar sem númer
hvers keppanda er tekið niður, við þetta sleppum við við tímatökusenda en planið er að halda flækjustiginu algerlega í
lágmarki.
Svo nú er um að gera fyrir alla sem vettlingi geta valdið að skrá sig til leiks, mæta og hafa gaman !
Dagskrá:
Skoðun hefst 10:00
1. umferð hefst 11:15
2. umferð hefst 13:30
Verðlaun 15:15










