Almennt - mánudagur 06.febrúar 2012 - Vefstjóri - Lestrar 50 -
Athugasemdir (0)
Fyrsta umferð af þrem í Sno Cross Country mótaröðinni fór fram við Bolaöldu, aksturssvæði VÍK og LÍV-R sunnudaginn
5.febrúar. Lögð hafði verið um 11km löng stórskemmtileg braut sem teygði sig inn í Jósepsdalinn. Þátttaka var góð og
greinilega hugur í fólki að endurlífga keppnishald á vélsleðum hér heima. Keppt var í fjórum flokkum: meistaraflokki, b-flokki,
kvennaflokki og unglingaflokki.
Tvær konur tóku þátt og stóðu þær sig frábærlega. Meistaraflokkur keyrði í 2x 75 mínútur og hinir í 2x 45
mínútur. Allir flokkar fóru á sama tíma á ráslínu en meistaraflokkur var ræstur 1 mínútu á undan restinni.
Fyrirkomulagið á ræsingunni var hlaupandi start 20 m fyrir aftan hverja ráslínu að sleðanum. VÍK ásamt feðgunum Stebba og Jonna eiga
þakkir skyldar fyrir mikla vinnu og góða framkvæmd í alla staði. Næsta keppni fer fram á Mývatni 17. mars