1. Dagur hjį team Burandt
Almennt - mišvikudagur 03.febrśar 2010 - Slśšur - Lestrar 116 - Athugasemdir (1)
Fyrsti dagur búinn hjá team Burandt. Hópurinn er sammála að Burandt sé ekki mennskur !!! Fengum að kenna á hans sérgrein í þéttvöxnum skógarbrekkum með púðurkistum og þröngum línum sem stundum voru grennri en sleðabreiddin. Töldum að þetta yrði smá sýnikennsla í byrjun dags en henni lauk ekki fyrir en 7 tímum síðar. Lýsingarorðin sem fuku úr kjöftum meðlimum team Burandt verður ekki lýst hér frekar.








