Landssamband Íslenskra Vélsleðamanna (LÍV) var stofnað í Nýjadal þann 4. apríl 1984.Tilgangur landssambandsins er að vinna að öryggis- og hagsmunamálum vélsleðamanna. LÍV kemur fram gagnvart stjórnvöldum í öllum málum er varða vélsleðamenn á landsvísu, sambandið stuðlar að góðri umgengni vélsleðamanna og vernd náttúru landsins, m.a. með samstarfi við umhverfis- og náttúruverndaraðila. LÍV vinnur að stofnun og styður starf vélsleðafélaga á landinu. LÍV gefur út málgagnið Vélsleðinn og heldur úti þessari heimasíðu um málefni félagsins og aðildarfélaga.
Með því að gerast félagi í LÍV leggur fólk lið hagsmunabaráttu sleðamanna og síðan getur aðild verið fljót að borga sig fjárhagslega, nýti viðkomandi sér þá afslætti sem félagsmönnum L.Í.V standa til boða hjá fyrirtækjum um allt land.
Aðild að LÍV gildir einnig sem
aðild að svæðafélagi á viðkomandi stað. Svæðafélögin eru nú þrjú, þ.e. Snæ-LÍV í
Skagafirði, LÍV-Reykjavík á sv-horninu og EY-LÍV í Eyjafirði. Árgjald að félögunum er aðeins 4.500 kr.Algengt er að fyrirtæki séu að veita félagsmönnum LÍV 10% afslátt og því auðvelt að reikna út að þegar verslað hefur verið fyrir meira en 4.000 kr samtals hjá umræddum fyrirtækjum eru menn komnir út í gróða.
Fjölmörg fyrirtæki veita félagsmönnum LÍV afslátt, listi yfir þau er væntanlegur hér á vefinn innan tíðar.








